
Eftir fund Ullarverslunarinnar með Vegagerðinni er ljóst að verslunin verður áfam í Gömlu Þingborg enn um sinn og að öllum líkindum í mörg ár enn. Það verður annar fundur á næstunni þar sem mál skýrast enn betur og samið verður um næstu ár. Það er mikils virði að þessari óvissu sem kom upp við söluna á Gömlu Þingborg til Vegagerðarinnar hefur verið eytt í bili.
Svo eru að verða þær breytingar að gamla Þingborgar-samvinnufélagið sem kom þessu ævintýri öllu af stað og hefur verið til húsa í Gömlu Þingborg frá 1990 flytur í burtu. Kembivélin og starfið í kringum hana verður flutt í Hrísmýri 5 á Selfossi. Þar verður einnig komið upp litunar- og þvottaaðstöðu fyrir félagskonur. Þetta er tilraunaverkefni út næsta ár og þá verður framhaldið metið. Þarna verður einnig námskeiðsaðstaða og ef vel tekst til er hugmyndin að þarna verði til nýtt fyrirtæki í framtíðinni í bæði ullarvinnslu og kynningu á íslensku ullinni.
Félagið mun kynna þetta betur eftir því sem það vinnst áfram. Við þennan flutning á kembivélinni opnast aftur tækifæri fyrir Ullarverslunina Þingborg að nýta herbergið sem kembivélin hefur verið í hingað til.
Þingborgar lopinn er kominn í vefverslun.
Eins er hægt að panta í síma 482 1027 og 846 9287, sömuleiðis í tölvupósti, gamlathingborg@gmail.com
Þingborg lopi is now in our webshop.
It is also possible to order by phone +354 482 1027 / +354 846 9287, and email, gamlathingborg@gmail.com
Allar vörur í vefverslun eru geymdar í Þingborgarversluninni og er meira úrval á staðnum. Sömuleiðis er hægt að sækja vörurnar í Þingborg
All products in webshop are at Þingborg Wool Shop and we have more products at our shop, you can also order and pick up at Þingborg Wool Shop.