Fyrirtækið
Markmið Þingborgar er að veita viðskiptavinum okkar úrvals vörur á sanngjörnu verði. Þingborg áskilur sér rétt á að hætta við pantanir, þar með talið, en þó ekki tæmandi talið, vegna rangra verðupplýsinga, skekkju í birgðastöðu eða annarra atvika. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Kennitala félagsins er 541218-1810 og virðisaukaskattsnúmer er 133296.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Um allar pantanir sem dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Þingborg ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Þingborg og þar til hún er afhent kaupanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Verð á vöru og sendingakostnaður
Verð í vefverslun ber 24% virðisaukaskatt en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram, ef senda á vöruna í pósti. Við sendum allar vörur með Íslandspósti. Valfrjálst er hvort pakkinn er sendur á pósthús eða beint heim að dyrum. Sendingarkostnaður er samkvæmt verðskrá íslandspósts hverju sinni.
Pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag og sendar á pósthús alla virka daga.
Pantanir sem berast eftir kl 16:00 á föstudegi verða afgreiddar á næsta virka degi.
Afhendingartími fer eftir afhendingaráætlun Íslandspósts.
Að skila og skipta vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því framvísunar sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu ástandi þegar henni er skilað. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta við móttöku í verslun. Inneignarnótan er í formi kóða sem hægt er að notað í vefverslun þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Hægt er, undir ákveðnum kringumstæðum, að taka kóðann gildan í verslun Þingborgar. Ef farið er fram á endurgreiðslu þá er hún framkvæmd eftir að varan er móttekin aftur í verslun. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn viðskiptavini að kostnaðarlausu. Einnig er hægt að krefjast endurgreiðslu. Að öðru leyti vísast til laga um neytendasamninga nr. 16/2016 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingarnar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy: All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.
Póstlisti
Með kaupum á vefversluninni veitir kaupandi seljanda heimild til að skrá sig á póstlista (nefndur vildarklúbbur). Kaupanda er að sjálfsögðu heimilt að afskrá sig af póstlistanum á hverjum tíma.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
Governing law/ Jurisdiction: These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.