Lopapeysuuppskrift “Villanelle” hönnun Maja Siska

1.000 kr.

Villanelle er prjónuð frá hálsmáli niður og í hring, nútíma nálgun á hefðbundnu íslensku lopapeysuna. Innblásin af glaðlegu og sterku Slettuskjóttu litunum og auðvitað Villanelle, aðalhetjunni í BBC seríunni! Prjónuð úr tvöföldum plötulopa og með 6,5 mm prjónum, létt og mátulega hlý sumarpeysa sem fellur klæðilega. Ekkert tvíbandaprjón, aðeins einn litur notaður í hverri umferð. Oddaprjónið myndar sjálfkrafa mislitt sikksakk. Sniðið er rúmt, mælt er með 12-20 cm vídd umfram aðsniðið mál. Með styttum umferðum verður peysan síðari að aftan og fellur fallega að baki. Klaufir eru á stroffi að neðan. Mjög þægileg peysa!

Add to wishlist